top of page

Gistiheimilið Gimbur

 

Gistiheimilið Gimbur stendur við þjóðveg 76 u.þ.b. 23 km norðan Hofsóss á landi Reykjarhóls. Húsið stendur fyrir opnu hafi og nýtur miðnætursólar allt sumarið og frá miðjum júní og út mánuðinn sest sólin aldrei.  Á veturna njótum við næturhimins með sínum stjörnum og norðurljósum. 

Staðurinn hentar mjög vel fyrir hvers lags hópa s.s. gönguhópa, fuglaskoðara, ljósmyndara, veiðimenn og hestamenn.

Í húsinu eru 7 svefnherbergi, tvö þeirra með sér inngang og baðherbergi. Inni í húsinu eru tvö baðherbergi sem 5 herbergi deila.

Rúmgott vel útbúið eldhús , heitur pottur, grill og góð aðstaða til samveru í sal á efri hæð. Fjölbreyttar gönguleiðir í nágrenninu.        

Nánari upplýsingar veita Sjöfn (899 3183)  og Jón (861 6030)

eða sendið tölvupóst í info@reykjarholl.is 

bottom of page